Krónan hefur nú úthlutað um sjö milljónum króna til 25 verkefna í formi samfélagsstyrkja til verkefna sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar.
Í ár bárust 111 umsóknir þar sem 25 þeirra hlutu styrk. Verkefni sem fengu styrk á landsbyggðinni voru 17 talsins og voru verkefnin átta á höfuðborgarsvæðinu.

Að sögn Ástu S. Fjeldsted, framkvæmdastjóra Krónunnar, hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með uppgangi þeirra verkefna sem hafa hlotið samfélagsstyrki Krónunnar í gegnum árin.
„Við hjá Krónunni erum afar glöð með fjölda og gæði styrktarumsókna í ár og greinilegt að mikill metnaður er lagður í þau verkefni sem snúa að lýðheilsu og hreyfingu barna og ungmenna, sem og uppbyggingu í okkar nærsamfélagi, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Það er okkur sönn ánægja að leggja þessum aðilum og verkefnum lið í þeirra vegferð. Eins er virkilega gaman að veita nú styrki á Akureyri í fyrsta sinn þar sem við munum opna okkar fyrstu verslun á Norðurlandi á næsta ári,“ bætir Ásta við.
Opnað verður fyrir umsóknir fyrir næsta styrktarár á heimasíðu Krónunnar 1. maí 2022. Umsóknarfrestur verður til og með 31. ágúst 2022.
Verkefnin sem hlutu styrk í ár eru:
• Muninn kvikmyndagerð á Akranesi, fyrir Jólagleði í Garðalundi.
• FVA á Akranesi, fyrir Heilsuviku.
• Blakdeild KA á Akureyri, fyrir þjálfaranámskeið til að tækla einelti, samskipti, kvíða og fleira hjá börnum.
• KA og KA/Þór á Akureyri, fyrir handknattleiksdeild barna.
• Stjarnan í Garðabæ, fyrir handknattleiksdeild barna.
• Haukar körfubolti í Hafnarfirði, fyrir körfuboltaþjálfun fatlaðra.
• Leiklistarfélag Setbergsskóla í Hafnarfirði, fyrir sýningahald.
• Rafíþróttadeild Dímonar á Hvolsvelli, fyrir uppbyggingu á rafíþróttadeild.
• Afrekshugur á Hvolsvelli, fyrir afsteypu af styttu Nínu Sæmundsdóttur í miðbæ Hvolsvallar.
• HK í Kópavogi, fyrir Krónumót yngri flokka í knattspyrnu.
• Frjálsíþróttadeild Aftureldingar í Mosfellsbæ, fyrir kaup á áhöldum og uppbyggingu.
• Ólafur Arason á Reyðarfirði, fyrir gróðursetningu á birkiplöntum í reit Skógræktarfélags Reyðarfjarðar.
• Hrafnkell Freysgoði á Breiðdalsvík, fyrir sparkvelli.
• Heilsueflandi grunnskólar í Reykjanesbæ, fyrir Sterkari út í lífið.
• Heiðarskóli í Reykjanesbæ, fyrir uppbyggingu á útikennslusvæði í Gryfjunni.
• Fram í Reykjavík, fyrir handknattleiksdeild barna.
• Listhlaupadeild Fjölnis í Reykjavík, fyrir kaup á búnaði og þjálfaranámskeið.
• Reiðskólinn á Bjarnastöðum í Ölfusi, fyrir búnaði og uppbyggingu.
• Dansakademían á Selfossi, fyrir fyrstu nemendasýningu nýs dansskóla.
• Sundfélag ÍBV í Vestmannaeyjum, fyrir sunddeild barna.
• Listasmiðja náttúrunnar í Vestmannaeyjum, fyrir myndlistarnámskeið barna þar sem áhersla er lögð á sköpun sem er samtvinnuð við náttúru og útiveru.
• Foreldrafélag leikskólans Bergheima í Þorlákshöfn, fyrir kaup á Bambahúsi til að rækta grænmeti.
• Ægir í Þorlákshöfn fyrir knattspyrnudeild barna.
• Björgunarsveitin Víkverji í Vík, fyrir uppbyggingu.
• Tindur í Reykjavík, fyrir Krónu sparkhjólamót barna.