ÍBV stelpurnar eru komnar heim úr frægðarför frá Grikklandi og taka á móti liði Stjörnunnar klukkan 15:00 í íþróttamiðstöðinni. Liðin sitja fyrir leikinn í sjötta og sjöunda sæti deildarinnar bæði með tvö stig en ÍBV hefur leikið einum leik færra.