Báðar viðureignir ÍBV og gríska liðsins AEP Panorama í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik fara fram í Vestmannaeyjum. Að sögn Vilmars Þórs Bjarnasonar, framkvæmdastjóra handknattleiksdeildar ÍBV í samtali við vefinn handbolti.is, hafa félögin komið sér saman um að leikirnir verði föstudaginn 19. nóvember kl. 18.30 og laugardaginn 20., kl. 13:00.

Rætt er við Sunnu Jónsdóttur fyrirliða ÍBV liðsin um Evrópuævintýrið í nýjasta tölublaði Eyjafrétta sem dreift verður á morgun.