SASS óskar eftir tilnefningum til Menntaverðlauna Suðurlands 2021. Allir þeir sem tengjast skóla- og/eða menntunarstarfi með einhverjum hætti, s.s. sveitarfélög, skólanefndir, kennarar, starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf, hafa rétt til þess að tilnefna til verðlaunanna. Tilnefningunni verður að fylgja ítarlegur rökstuðningur.

Allir þeir sem koma að skóla- eða menntunarstarfi með einhverjum hætti geta hlotið verðlaunin, t.a.m. leikskólar, grunnskólar, framhaldssskólar, símenntunarstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélag/skólanefndir og foreldrafélög.

Tilnefningar skulu berast til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56, Selfossi, fyrir miðnætti fimmtudaginn 6. janúar nk. Tilnefningar berist á netfangið [email protected]

Verðlaunin verða nú veitt í fjórtánda sinn. Veitt verða peningarverðlaun sem nýtast til áframhaldandi menntunarstarfs, sem og formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tenglsum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands í janúar nk.