Nýtt uppsjávarskip Ísfélagsins kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í hádeginu í dag. Strax verður hafist handa við að læra á skipið og skrá það í íslenska skipaskrá. Skipið fær nafnið Suðurey VE 11 með skráningarnúmer 3016. Stefnt er að því skipið verði klárt til veiða um áramótin. Skipstjóri verður Bjarki Kristjánsson og yfirvélstjóri Sigurður Sveinsson. Áhöfnin af Dala Rafni mun síðan færa sig yfir um jólin. Vegna Covid reglna þá verðum ekkert um veisluhöld við komu skipsins.