Á undanförnum vikum hafa starfsmenn bæjarins fundað með hagsmunaaðilum og kynnt fyrir þeim rannsóknir Vegagerðarinnar á afleiðingum þess að stytta Hörgeyrargarðinn. Frá þessu er greint á vef Vestmannaeyjabæjar.

Rannsóknir Vegagerðarinnar voru til að kanna hvaða áhrif það hefði á sog og öldu innan hafnar ef breytingar yrðu gerðar á garðinum. Í ljós kom að ef garðurinn yrði fjarlægður yrðu töluverðar breytingar á öldulagi innan hafnar í ákveðnum áttum sem ekki telst viðunandi. En það að stytta garðinn um 70 metra hefur lítil sem engin áhrif á öldu innan hafnar samkvæmt niðurstöðu úr líkanagerð Vegagerðarinnar.

Með því að stytta garðinn myndi aðgengi stórra skipa svo sem farþegaskipa að höfninni verða betra þar sem ekki þyrfti að sneiða fram hjá garðinum og grynningunum í kringum hann. Það mun hinsvegar ekki tryggja það að hægt sé að taka inn stærri skip en nú er gert og því nauðsynlegt að halda áfram undirbúningsvinnu við stórskipakant norðan Eiðis.

Framkvæmda- og hafnarráð sem og starfsmenn Vestmannaeyjahafnar telja ávinninginn af styttingu garðsins töluverðar. Ráðið hefur kallað eftir áliti þeirra sem mest nýta höfnina á þessari hugmynd og ef ekkert nýtt kemur upp þá er stefnt að því að koma þessari framkvæmd inn á endurskoðaða samgönguáætlun árið 2022.