Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að humarveiðar verði ekki heimilaðar árin 2022 og 2023. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að veiðar með fiskibotnvörpu verði áfram bannaðar á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi til verndar humri.

Afli á sóknareiningu árið 2021 var sá minnsti frá upphafi og hefur lækkað samfellt frá hámarkinu árið 2007. Stofnstærð humars í stofnmælingunni 2021 hefur lækkað um 27% frá árinu 2016, en stofnmæling með núverandi fyrirkomulagi talninga á humarholum hófst þegar stofninn var þegar í mikilli lægð. Þéttleiki humarholna við Ísland árið 2021 var metinn 0.066 holur/m2 sem er með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf fyrir. Fyrirliggjandi gögn benda til að nýliðun sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litlir. Verði ekki breyting þar á má búast við áframhaldandi minnkun stofnsins.

Hlekkur á ráðgjöf um humar