Árlega taka Lionsmenn í Vestmannaeyjum upp á því í samstarfi við HS veitur að velja jólahús Vestmannaeyja. Í ár var það húsið við Birkihlíð 4 sem var valið. Þar eru húsráðendur þau Anna Rós Hallgrímsdóttir og Páll Þ. Harðar. Þau tóku á móti viðurkenningu frá þeim Sigurjóni Ingólfssyni frá HS veitum og Arnari Andersen formanni Lions í Vestmannaeyjum.