Þrettándagleði ÍBV verður laugardaginn 8. janúar 2022. Hátíðin verður með sama sniði og í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Kveikt verður á kertunum á Molda kl. 19:00, í framhaldinu munu Jólasveinarnir horfa til byggða ofan af Há, til að geta veifað til barnanna og svo verður skotið upp flugeldum af Há, Helgafelli og Heimakletti.