Eyþór Orri Ómarsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV. Eyþór hefur leikið 35 leiki fyrir félagið og skorað í þeim eitt mark. Á síðasta tímabili var Eyþór lánaður í KFS þar sem hann spilaði 7 leiki og skoraði í þeim 3 mörk. Tómas Bent Magnússon hefur skrifað undir 2ja ára samning við ÍBV. Tómas hefur jafnt og þétt verið að gera sig gildandi í liði ÍBV og hefur hann nú leikið 37 leiki fyrir ÍBV í deild og bikar og skorað í þeim 4 mörk.