Vegna Covids smits hefur verið ákveðið að fresta leik ÍBV og KA/Þór í Olís deild kvenna sem átti að fara fram á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HSÍ. Nýr leikdagur verður fundinn fljótlega.