Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarráðs í gær en þar kom fram að flugfélagið Ernir hóf áætlanaflug til og frá Vestmannaeyjum þann 23. desember sl., að undangenginni verðkönnun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Flugið er starfrækt með sérstöku framlagi frá samgönguráðuneytinu vegna Covid.

Dýpi í Landeyjahöfn hefur versnað og verður dýpkað þegar aðstæður leyfa. Bæjarstjóri og fulltrúar Vegagerðarinnar eru í reglulegum samskiptum um Landeyjahöfn. Mikilvægt er að tæknileg geta sé til staðar við dýpkunina og huga þarf að því í útboði á dýpkun í Landeyjahöfn. Lykilatriði er að klára úttekt á höfninni og fá úr því skorið hvernig hægt er að bæta hana.

Framtíðarlausn á flugsamgöngum
Bæjarráð þakkar í niðurstöðu sinni um málið samgönguráðherra og stjórnvöldum fyrir skilning á aðstæðum Vestmannaeyinga er varðar flugsamgöngur og vilja til að finna tímabundna lausn á áætlunarflugi. Mikilvægt er að stíga skrefið til fulls sem fyrst og finna framtíðarlausn á flugsamgöngum til og frá Vestmannaeyjum. Flugið er nauðsynlegt fyrir atvinnulíf sem treystir m.a. á aðkomu sérfræðinga af fasta landinu, til að draga úr fjarvistum starfsmanna vegna óhóflega langs biðtíma eftir niðurstöðum PCR prófa, til að draga úr sjúkraflutningum sem gætu farið fram með áætlunarflugi í stað sjúkraflugs og síðast en ekki síst til að bæta lífsgæði og ferðafrelsi Eyjamanna sem búa nú við sögulega slakar flugsamgöngur. Mikilvægt er að leita allra leiða til að efla flugið enn frekar og auðvelda flugrekstraraðila að bæta við áætlun sína þegar aðstæður leyfa.

Dýpkun þarf að ganga hratt
Þá ítrekar bæjarráð mikilvægi reglulegra og öruggra siglinga til Landeyjahafnar fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum. Dýpkun þarf að ganga hratt og vel fyrir sig og er Vegagerðin meðvituð um mikilvægi þess. Það dýpkunarskip sem er tiltækt er illa búið til dýpkunar við erfiðar vetraraðstæður og nauðsynlegt að Vegagerðin skoði aðrar leiðir til að tryggja dýpi yfir erfiðustu vetrarmánuðina þegar dýpkun er boðin út.