Málefni Hraunbúða voru til umræðu á fundi bæjarráðs í gær. Framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs greindi frá fyrirhuguðum framkvæmdum við skiptingu Hraunbúða milli hjúkrunarheimilis, sem HSU annast rekstur á, og dagdvalarþjónustu, þ.m.t. sértæku dagdvöl, sem Vestmannaeyjabær annast rekstur á. Viðræður milli HSU og Vestmannaeyjabæjar um framkvæmdirnar átti sér stað í síðustu viku og voru báðir aðilar sammála um að hefja framkvæmdir strax. Jafnframt greindi framkvæmdastjóri frá viðræðum við fulltrúa HSU um forsendur leigusamnings milli aðila.