Sighvatur VE uppsjávarveiði skip Vinnslustöðvarinnar losnaði frá bryggju í morgunn og rakst utan í Ísleif VE með þeim afleiðingum að skemmdir urðu á rekkverki Sighvats. Búið er að koma böndum á skipið. Til stendur að meta tjónið betur þegar birta tekur af degi.