Foreign Monkeys hafa sent frá sér tónlistarmyndband við sitt nýjasta lag, Those That Suffer, en það kom út fyrir tveimur vikum síðan.

Myndbandið geymir ferðasöguna á bakvið þegar lagið var hljóðritað en lagið var tekið upp í Álsey, einni útey Vestmannaeyja, sumarið 2020. Gottskálk Daði Bernhöft Reynisson annaðist upptökur og vinnslu á myndbandinu.

Lagið hefur mælst vel fyrir á streymisveitum og hefur nú þegar verið spilað meira þar en nokkuð annað lag drengjanna sé miðið við fyrstu dagana eftir útgáfu. Einnig náði lagið inn í 11. sæti Dominoslistans á X-inu 977 strax fyrstu vikuna.