Bætt aðstaða fyrir móttöku skemmtiferðaskipa var til umræðu á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni sem leið. Hafnarstjóri fór yfir tillögur varðandi bætta aðstöðu fyrir skemmtiferðaskip sem og íbúa, við Edinborgarbryggju og Nausthamarsbryggju. Gerður verði göngustígur frá Nausthamarsbryggju að Vigtartorgi sem tengir betur saman svæðin og auðveldar aðgengi.