Það var margt um manninn þegar sýningin “Ertu héðan?” opnaði á laugardaginn í KFUM & K húsinu. Sýningastjórinn er Vala Pálsdóttir en sýningin er afurð meistararitgerðar hennar frá Listaháskóla Íslands og er útskriftarverkefnið hennar frá skólanum. Í ritgerðinni veltir Vala upp þeirri hugmynd að Vestmannaeyjabær taki að sér að halda utan um störf og ævi Júlíönu Sveinsdóttur. „Ég hef lengi verið aðdáandi verka Júlíönu en því miður er að aðgengi að verkum hennar mjög takmarkað,“ segir Vala. “Júlíana er einn af frumkvöðlum íslenskrar myndlistar.
Sýningin verður opin alla daga kl. 14 – 17 frá 9. apríl til og með páskasunnudegi 17. apríl. Sýningin verður einnig opin eftir samkomulagi og er áhugasömum velkomið að hafa samband við Völu Pálsdóttur sýningarstjóra: [email protected]
Aðgangur að sýningunni er ókeypis og öllum opinn.
Samkomuhús KFUM & K stendur við Vestmannabraut 5 en þar hélt Júlíana Sveinsdóttir fyrstu einkasýningu sína árið 1926.
Gönguferð á slóðir Júlíönu í Eyjum um Páskana
Í tengslum við sýninguna býður Vala Pálsdóttir öllum áhugasömum í gönguferð um Vestmannaeyjar þar sem hún segir frá Júlíönu Sveinsdóttur og þeim slóðum sem hún málaði og varð fyrir áhrifum á. Gönguferðin hefst við KFUM-húsið kl. 11:00 bæði á Skírdag og Páskadag, tekur um klukkustund og endar á sama stað.