Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2022 útnefndur

Tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2022 í Eldheimum á sumardaginn fyrsta, 21. apríl kl. 11:00. Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs mun tilkynna um valið.
Skólalúðrasveit Vestmannaeyja mun leika nokkur lög.
Krakkar úr 8. bekk Grunnskólans í Vestmannaeyjum sem tóku þátt í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin var á Hellu í fyrra lesa ljóð.

Allir velkomnir!

Sumardagurinn fyrsti

Í tilefni af sumardeginum fyrsta býður Vestmannaeyjabær bæjarbúum frítt í sundlaugina og frítt í Eldheima og Sagnheima. Opið í Einarsstofu og í Sagnheimum frá kl. 13:00-16:00 og í Eldheimum frá kl.  13:00-17:00. Sundlaugin er opin frá kl. 9:00-17:00.

Gleðilegt sumar!