Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar samþykkti þann 7. apríl 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á Deiliskipulagi Miðbæjar, 2 áfangi, auglýst skv. 1 mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í meginatriðum í stækkun byggingarreits, auknu byggingarmagni og viðbættri 4. hæð á Strandvegi 51. Heildar byggingarmagn var 514,6 m2 og verður 1490,0 m2. Grunnflötur byggingarinnar er einnig stækkaður er nú 334,6 m2 og í 467,0 m2.

Þakform er með breyttum hætti, var mænisþak en verður nú einhalla þak. Hámarkshæð hússins helst óbreytt 14,5 m en hámarks vegghæð hækkar frá 9 m í 14,5 m.

Krafa um atvinnustarfsemi á jarðhæð helst óbreytt en á hluta hæðarinnar er gert ráð fyrir bílastæðahúsi fyrir 4 bíla. Lóðamörkum milli Strandveg 51 og Standaveg 55 er breytt og gert er ráð fyrir 2 bílastæðum fyrir Standveg 51 með innkeyrslu frá Miðstræti. Hámarksfjöldi íbúða verður 8 íbúðir.

Samkvæmt deiliskipulagi skal ytra byrði hönnunar hússins skal vera samkvæmt innsendum teikningum. Tillögu teikningar má sjá á vefmyndbandi

https://youtu.be/imXIJAGfb6g

Skipulagsgögn liggja frammi hjá Umhverfis- og framkvæmdasviði að Skildingavegi 5 á tímabilinu 28. apríl til 9. júní 2022 og má einnig finna í skipulagsgátt á vefsíðu sveitafélagsins.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér gögnin. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna þarf að skila skriflega eigi síðar en 9. júní 2022 í afgreiðslu Umhverfis- og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5, eða á netfangið [email protected]