Samgöngustofa vekur athygli á að með reglugerð nr. 414/2021 um skoðun ökutækja hafa ökutæki í ákveðnum ökutækja- og notkunarflokkum fengið nýjan skoðunarmánuð. Skal nú og framvegis færa þau til skoðunar eins og þau hefðu 5 í endastaf skráningarmerkis, sem þýðir að skoðunarmánuðurinn er maí. Þetta á við um húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki. Vanrækslugjald leggst á óskoðuð ökutæki í þessum flokkum þann 1. ágúst.

Reglubundin skoðun ökutækja þar sem farið er yfir ástand og búnað er lögbundin, enda mikilvæg fyrir umferðaröryggi. Samgöngustofa hvetur því eigendur ofangreindra ökutækja að huga að skoðun sem fyrst og fara þannig öruggari á göturnar og inn í sumarið. Ítarlegri upplýsingar má finna á www.samgongustofa.is/skodun

Hægt er að sjá skoðunarmánuð og skoðunarár ökutækja með því að fletta upp númerinu á vefsíðunni http://www.samgongustofa.is/okutaekjaskra eða á Mínu svæði Samgöngustofu.