Eyjamenn sýndu heldur betur úr hverju þeir eru gerðir þegar ÍBV sigraði Val nú rétt í þessu og jafnaði þar sem úralitaeinvígið í 1-1. Eyjamenn lentu fimm mörkum undir nokkrum sinnum í leiknum en komu ætíð til baka og lönduðu sigrinum, 33-31 Björn Viðar Björnsson markmaður tók nokkrar magnaðar vörslur og hélt IBV oft inn í leiknum.

Næsti leikur verður í Origohöllinni á miðvikudaginn kemur.