Karlalið ÍBV í knattspyrnu náði sér ekki á strik í leiknum gegn Stjörnunni í dag. Leiknum lauk með 1-0 sigri Stjörnunnar, en markið kom á 60. mínútu. Leikmaður ÍBV, Elwis Bwomono var í banni í dag eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik gegn ÍA og Atli Hrafn hjá ÍBV fékk rautt spjald stuttu eftir að hafa farið af velli, spjaldið fékk hann fyrir að æsa sig á bekknum.

Lið ÍBV er sem stendur í fallhættu, í 11. sæti deildarinnar eftir átta tapleiki og væri fróðlegt að vita hvaða plan þjálfarinn Hemmi Hreiðars er með fyrir næstu leiki.