Seinkun hefur orðið á ferð Herjólfs nú í kvöld vegna áreksturs sem átti sér stað þegar Herjólfur lagðist að bryggju í Vestmannaeyjum.

Bílabrúin skemmdist eitthvað og að sögn farþega kom mikið högg á skipið. Svo mikið að barn um borð féll og meiddist. Ekki er vitað hvort meiðslin séu alvarleg.

Unnið er að viðgerð, á meðan bíða farþegar um borð komast ekki út.

Lögreglan aðstoðar Herjólfsmenn
Enginn kemst út og enginn inn