ÍBV tókst að stoppa óslitna sigurgöngu toppliðsins Breiðabliks á Hásteinsvelli í dag, en leikurinn endaði í 0-0 jafntefli.

Lokamínúturnar voru æsispennandi og kórónuðu þar með spennandi leik með fullt af færum hjá báðum liðum. Markverðir beggja liða áttu stjörnuleik í dag.

Eftir leikinn er Breiðablik sem fyrr á toppnum, en ÍBV á botninum.

Guðjón Orri markvörður ÍBV átti stórleik í dag