Dregið var um mótherja fyrstu umferðar í Evrópubikarkeppni karla í handbolta í gær, ÍBV dróst á móti ísraelska liðinu Holon HC í fyrstu umferð.

ÍBV er ekki eina íslenska liðið sem skráð er til leiks, en Haukar og KA verða einnig fulltrúar Íslands. Haukar og KA sitja þó hjá í fyrstu umferð og voru því ekki í pottinum þegar dregið var í morgun.

Þetta er í þriðja sinn sem Eyjamenn mun mæta ísraelsku liði á sjö árum. Árið 2015 mætti liðið Hapoel Ramat Gan og árið 2018 dróst liðið á móti SGS Ramhat Hashron HC. Það er Handbolti.is sem bendir okkur á þessa skemmtilegu staðreynd.

Leikir fyrstu umferðarinnar fara fram aðra og þriðju helgina í september. Eyjamenn munu að öllu óbreyttu leika fyrri leik viðureignarinnar á heimavelli. Það gæti þó breyst þar sem ekki er óþekkt að lið selji heimaleiki sína í keppnum sem þessari.

Þetta kemur fram á vefnum visir.is