Verkefnið, Komdu í fótbolta, samstarfsverkefni KSÍ og Landsbankans heldur áfram og hefur  Siguróli Kristjánsson, kallaður Moli, umsjón með verkefninu.

Moli mætti á æfingu hjá yngri flokkum ÍBV í morgun. Setti hann upp æfingar, hvatti krakkana áfram og gaf þeim buff og plaköt. Félagið fékk bolta að gjöf og var mikið stuð.