Hvalirnir Litla Grá og Litla Hvít eru enn í sundlauginni hjá Sea Life Trust við Ægisgötu 2, stefnt er að því að senda þær út í Klettsvík í næstu eða þarnæstu viku.

Á meðan eru þær í góðu yfirlæti hjá þjálfurum sínum og hægt er að sjá þær á opnunartíma safnsins. Opnunartíminn hefur verið lengdur yfir Þjóðhátíðina og er opið  29. – 31. júlí milli kl. 13-18.

Litla Grá og Litla Hvít bíða eftir að komast út í Klettsvík.