Það var margt um manninn í rigningunni í gær við að setja upp súlur í Herjólfsdal.  Umferð var stýrt inn í Dal, svo einungis færu þangað bílar með stangir, nóg var umferðin samt.

Aðeins þeir sem voru með súlur máttu keyra alla leið inn í Herjólfsdal.

Aldrei eins mörg Þjóðhátíðartjöld og nú
Í ár er metfjöldi Hvítra tjalda í Dalnum, skýrist það aðallega af tvennu: í fyrsta lagi þá eru flestir Vestmannaeyingar eru í spreng við að fá að halda langþráða Þjóðhátíð og sumar fjölskyldur sem hafa ekki tjaldað í fleiri ár, eru að tjalda. Í öðru lagi eru Þjóðhátíðartjöldin orðin stærri en tíðkaðist.

Það hringdi hressilega á fólk í Dalnum í gær.

Gróflega er áætlað að svæðið undir Hvítu tjöldin sé helmingi stærra en nokkurntíman hefur veirð. Sumar götur nú eru því frá skilti út að malarvegi fyrir aftan svæðið. Ef þróunin heldur áfram á þennan veg þarf mögulega að ræða stækkun tjaldsvæðis fyrir Hvítu tjöldin og/eða takmarka fjölda þeirra. Hvorugur kosturinn þykir góður þar sem stækkun tjaldsvæðiðs myndi þýða að það þyrfti að fletja út Veltusundið. Og þá fyrst væri Þjóðhátíðarnefnd komin í vandræði!

Sól í Eyjum?
Á vef Fréttablaðsins segir Siggi Stormur veðurspárnar fyrir helgina vera að skána, sérstaklega fyrir Vestmannaeyjar.

„Ég á allt eins von á því, eins og stemningin er í spánum, að það verði alveg sól, tja, hverju á ég að lofa? Að það verði sól, má maður nefna Vest­manna­eyjar? Þá kannski eyði­leggur maður eitt­hvað, en spárnar eru sæmi­lega bjartar í Vest­manna­eyjum framan af helgi, en það verður svo­lítill vindur, sem skyggir svo­lítið á þetta, en það verður úr noðr­vestri, þannig ég held að Herjólfs­dalur verði í skjóli.“

Vinsæl hjá lægðunum
„En heilt yfir erum við að tala um vinda- og væta­sama helgi. Þetta er sama spurning og ég fékk frá öldruðum manni fyrir stuttu, af hverju ekki einn mánuð á ári sem er sæmi­legur? Við erum bara þannig í sveit sett á At­lants­hafi að við erum bara mjög vin­sæl hjá lægðunum, spor­braut lægðanna liggur yfir okkur eins og borgar­línan. Þetta er svo­lítið eins og leið eitt. Ís­land er vin­sælt meðal lægðanna.“