Guðjón Ernir hefur framlengt samning við ÍBV út tímabilið 2024.

Guðjón kom til ÍBV fyrir tímabilið 2020 og hefur verið í lykilhlutverki allar götur síðan. Þessi öflugi leikmaður kom frá Hetti þar sem hann er uppalinn.

Hjá ÍBV hefur Guðjón spilað 54 deildarleiki og skorað í þeim tvö mörk. Í sumar hefur hann einu sinni verið valinn í lið umferðarinnar og vakið verðskuldaða athygli í efstu deild.

Það er mikil ánægja hjá knattspyrnuráði með áframhaldandi samstarf við Guðjóni Erni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍBV.