Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar lóðir við Hvítingaveg 7-13 og Skólaveg 21c

Vestmannaeyjabær auglýsir lausar til umsóknar lóðir við Hvítingaveg 7-13 og Skólaveg 21c á breyttu deiliskipulagssvæði miðbæjar, Hvítingavegur og Skólavegur. Um er að ræða 4 lóðir fyrir einbýlishús við Hvítingaveg og eina fyrir tvíbýli sunnan við Alþýðuhúsið.

Lóðirnar við Hvítingaveg eru 272 m2 að stærð og byggingarmagn 150-220m2. Byggingarnar geta verið 1 hæð og kjallari eða 2 hæðir og kjallari.

Lóðin við Skólaveg er 376 m2 og byggingarmagn 120-220 m2. Gert er ráð fyrir allt 2 hæðum og risi. Fjöldi íbúða 1-2.

Eftirfarandi verð er sett á lóðirnar:

  • Skólavegur 21c, samtals 2 m.kr.
  • Hvítingavegur 7, samtals 5 m.kr..
  • Hvítingavegur 9, samtals 5 m.kr.
  • Hvítingavegur 11, samtals 4 m.kr.
  • Hvítingavegur 13, samtals 4 m.kr.

Einungis er um að ræða byggingarétt. Önnur gjöld eins og tengigjöld, gatnagerðargjöld, eftirlitsgjöld, eða annað sem almennt fellur til við úthlutun lóða og byggingarleyfis, eru ekki innifalin í tillögunum.

Allar nánari upplýsingar á vef Vestmannaeyjabæjar.

Dæmi um húsagerðir sem passa inn í skilmála fyrir lóðirnar við Hvítingaveg.
Breytt deiliskipulagssvæði miðbæjar gefur fimm nýjar lóðir undir byggingar íbúðarhúsa.
Dæmi um húsagerðir sem passa inn í skilmála fyrir lóðirnar við Hvítingaveg.