Nýtt blað Eyjafrétta kemur út á morgun og verður borið út til áskrifenda í Eyjum innan dagsins. Vefútgáfa blaðsins er þegar komin á vefinn og er áskrifendum aðgengileg þar.

Nú eru 80 dagar frá því nýtt fólk, Ómar og Eygló, tóku við kyndlinum á Eyjafréttum með útgáfu blaðs og fréttaveitu á vef. Samhliða tók til starfa ný stjórn Eyjasýnar sem hefur lagt mikið af mörkum við útgáfu blaðsins. Þegar litið er til baka yfir sumarið eru nokkrar skemmtilegar staðreyndir sem standa upp úr og gaman er að minnast á.

Fimm blöð hafa verið gefin út, samtals 120 blaðsíður af fjölbreyttu, skemmtilegu og athyglisverðu efni og móttökur hafa verið mjög góðar.

Tilviljun eða ekki þá hafa greinar verið 14, 15 og 16 í hverju blaði, samtals 74 sem sumar skiptast niður í nokkur viðtöl og frásagnir. Fólk á öllum aldri hefur komið við sögu og þeir sem hafa sagt sínar sögur í blaðinu á einn eða annan hátt skipta hundruðum. Ekki má gleyma ljósmyndunum þar sem m.a. Addi í London og Sigfús Gunnar hafa lagt okkur lið.

Þessi blöð hafa endurspeglað mikinn kraft í Vestmannaeyjum, í atvinnulífi og viðburðum. Má þar nefna Sjómannadag, TM-mótið, Orku-mótið, þjóðhátíð og núna Íslandsmótið í golfi sem þrátt fyrir snöggan endi vegna veðurs er enn ein rósin í hnappagat okkar Eyjafólks. Skólarnir skipta okkur líka miklu og þeim höfum við gert skil, bæði skólaslitum GRV og FÍV og nú er stór umfjöllun í upphafi nýs skólaárs.

Eyjafrettir.is hafa líka tekið stökkið upp á við. Ég held að það sé ekki of áætlað að meðaltal frétta inn á Eyjafréttir.is sé fjórar á dag sem gera samtals 320 fréttir. Margar unnar frá grunni og lítið um hreinar fréttatilkynningar.

Allir sem standa að blaðinu og koma að öflun efnis á einn eða annan hátt eiga margt sameiginlegt, en þó er eitt sem stendur upp úr og það er einskær áhugi á Vestmannaeyjum.

Það er okkar von að áhuginn skili sér inn í textann á síðunum alla leið til lesendanna.