Fjórar ástæður fyrir því af hverju þú hættir alltaf  

Kannast þú við það að byrja að hreyfa þig, taka svo pásu, byrja aftur, taka aftur pásu eða hætta? Af hverju heldur þú þetta ekki út? Af hverju er svona erfitt að koma þessu inn í rútínuna hjá þér?  

  1. Þú setur þér ekki skýr og sveigjanleg markmið. Það er alls ekki flókið að setja sér markmið og þau geta breyst þegar líður á ferlið, sem er allt í góðu. Þegar þú setur þér markmið sem kemur að hreyfingu þá mæli ég meira með að setja það þannig niður að þú mælir árangurinn út frá því að ná t.d. að hlaupa 5 km undir 30 mínútur í  staðinn fyrir útlitstengt markmið. Það er ekkert að því að vilja líta vel út en þegar markmiðið er bara að léttast eða breyta þessu og hinu er ólíklegt að þú sért að njóta þess að hreyfa þig. Þegar þú setur þér markmið er mikilvægt að hafa þau SMART – Skýr, Mælanleg, Aðgerðamiðuð, Raunhæf og Tímasett.
  2. Þú ferð í átak. Mjög vinsælar setningar: Jæja, nú fer ég að taka mig á.“ „Nei, nú fer ég í átak. EðaÆj, ég byrja bara á mánudaginn. Átak er leiðinlegt orð og er yfirleitt ávísun á leiðinlega hreyfingu og vondan mat. Af hverju ertu/þarftu að fara í átak? Ertu að gera það fyrir einhvern annan en sjálfan þig? Ertu bara að æfa til að léttast? 

    Átak þegar kemur að mataræði. Ertu að banna þér að borða hitt og þetta? Ertu að sleppa því að borða? Ertu að pína þig eða setja þér boð og bönn? 

    Mjög algengt er að fólk reyni að finna sér einhverjar skyndilausnir og byrji að fylgja ákveðnum matarplönum í ákveðinn tíma, en fara svo aftur í sama farið. Gefðu þér nokkra mánuði og reyndu að finna þinn milliveg, ekki hræðast að borða mat sem þér finnst góður. 

  3. Þér finnst þetta ekki gaman. Finnst þér leiðinlegt eða erfitt að mæta á æfingu? 

    Reyndu að finna þér hreyfingu sem þú hefur gaman af, hafðu hreyfinguna þína fjölbreytta og reyndu að prófa einhvað nýtt. Byrjaðu á að fara út í göngu, prófa fjallgöngu, hlaupa, heimaæfingar, styrktarþjálfun, mæta í hóptíma eða skráðu þig í einkaþjálfun o.s.frv. Að finna sér hreyfingu sem maður hefur gaman af og hlakkar til að mæta aftur í, hjálpar með andlega og líkamlega heilsu þá ertu að gera eitthvað rétt. 

  4. Þú gerir of mikið. Less is more! 

Erla Rós Sigmarsdóttir ÍAK einka- og styrktarþjálfari.  
Ein af föstu pennunum hjá Eyjafréttum.
Pistillinn birtist einnig í blaði Eyjafrétta þann 11. ágúst.