Mikill viðbúnaður var hjá Landhelgisgæslunni og Björgunarsveit Vestmannaeyja í gærkvöldi og nótt eftir að sést hafði til neyðarblyss á sjó.

Viðbragðsaðilar leituðu af sér allan grun en engin merki sáust um fólk í vanda.

Ekki er vitað hvaðan blysið kom eða frá hverjum.