Þó nokkr­ar lík­ur eru á því að það gjósi aft­ur í Heima­ey í ná­inni framtíð. Gos gæti þess vegna komið upp í miðju hafn­ar­mynn­inu svo mik­il­vægt er að fleiri en ein viðbragðsáætl­un sé fyr­ir hendi, að sögn Þor­valds Þórðar­son­ar, pró­fess­ors í eld­fjalla­fræði við Há­skóla Íslands í Dagmálum Morgunblaðsins.

Athyglisvert viðtal en í þeim anda sem einkennt hefur umræðuna um náttúruvá á Íslandi síðustu vikur og misseri. Þar sem jarð- og eldfjallafræðingar skafa ekki af hlutunum þegar kemur að því að lýsa því sem getur gerst.

„Ef það verður annað gos á Heima­ey þá er það at­b­urður sem að vert er að hafa mikl­ar áhyggj­ur af. Við þurf­um að vera til­bú­in með viðbragð þannig að við get­um komið fólki frá staðnum eins fljótt og auðið er, seg­ir Þor­vald­ur og telur lík­urn­ar á eld­gosi þó nokkr­ar, og bend­ir á að gosið hafi í Vest­manna­eyj­um árin 1963 og 1973, ann­ars vegar þegar Surts­ey varð til og hins veg­ar þegar gaus í Heima­ey.

Virðing mín fyrir vísindafólki okkar er mikil og nú segja þau Kötlu og Heklu komnar á tíma og að Bárðarbunga og Askja minni á sig. Nú er Reykjanesið vaknað eftir árhundraða svefn en hefur sem betur fer sýnt á sér mýkri hliðina í þeim tveimur gosum sem hafa komið upp. Ekki þarf að tíunda fyrir Íslendingum hvað getur gerst fari allt á versta veg og þá geta hverfi í Reykjavík og Hafnarfirði verið í hættu.

Með fullri virðingu fyrir því sem Þorvaldur segir þá er til viðbragðsáætlun verði eldgos á Heimaey auk þess sem vöktun með jarðskjálftamælum hefur verið bætt. En spurningin er hvað er náin framtíð í jarðfræði? Surtseyjargosið 1963 stóð í fjögur ár og nú segja vísindin að Heimaeyjargosið 1973 hafi verið einn angi þess. Þá voru 5000 ár frá því Helgafell gaus og norðurklettarnir, Heimaklettur, Miðklettur og Ystiklettur eru í dag taldir 40.000 ára gamlir.

Já, vísindakarlarnir okkar hafa hellt yfir okkur allskonar spám sem örugglega eiga eftir að rætast en nú færist ró yfir sviðið. Kristín Jónsdóttir, jarðskjáltafræðingur og hópstjóri Náttúruvárvöktunar Veðurstofunnar er mætt. Á skíran og einfaldan hátt lýsir hún því sem er að gerast. Hress í framkomu og af henni geislar áhugi og ástríða þegar móðir náttúra fer af stað. Þakkarvert.

Ómar Garðarsson.

[email protected]