ÍBV tók á móti Stjörnunni úr Garðabæ í leik dagsins og fór með sigur af hólmi, 3-1. ÍBV lenti undir á 23. mínútu þegar Einar Karl Ingvarsson skoraði fyrsta mark Stjörnunnar og leiksins.

En Eyjamenn náðu yfirhöndinni aftur með tvennu frá Andra Rúnari Bjarnasyni með stuttu millibili;  á 39. og 41. mínútu leiksins, Og leiddu því okkar menn leikinn í hálfleik.

Síðasta mark leiksins kom svo frá Arnari Breka Gunnarssyni á 56. mínútu og þar með var 3-1 sigur ÍBV nánast gulltryggður.

Aðrir leikir í Bestu deild karla í dag:
Keflavík – ÍA
KR – FH
KA – Víkingur R

Tölfræði og mynd frá fótbolta.net.