Á Hásteinsvelli kl. 14:00  í dag mun fara fram leikur íBV og Stjörnunnar. Þessi lið mættust síðast í lok maí í 8. umferð deildarinnar, skömmu fyrir landsleikjahlé. Þá hafði ÍBV ekki unnið leik og það leit út fyrir að liðið væri í smá krísu.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari, hefur hins vegar alltaf talað um að stutt væri í að stíflan myndi bresta og að ÍBV strákarnir færu að blómstra í sínum leik.

Nú eru einungis fjórar umferðir eftir af deildinni (með leiknum í dag) áður en deildinni verður skipt í efri og neðri. Þetta er nýtt fyrirkomulag og verður fróðlegt að sjá hvernig það spilast úr því. En það þykir þó nokkuð ljóst að það verða jafnari viðureignir og örugglega meira spennandi. Miðað við stöðuna eins og hún er í dag, mun ÍBV spila í neðri helmingi deildarinnar.

Fyrirkomulagið verður svona: efri og neðri deild.

Liðin verða auðvitað áfram með öll stigin sem þau höfðu unnið sér inn en nú verða til spennandi innbyrðis viðureignir, barist um Íslandsmeistaratitilinn og Evrópusæti í efri deild og í neðri deildinni um að forðast fallsætin tvö. Fleiri ‘sex stiga leikir’ eins og það er kallað.

Sex lið eru augljóslega í hvorri deild og leikin einföld umferð, þ.e.a.s. fimm umferðir. Þrjú efri liðin í hvorri deild fá þrjá heimaleiki en hin tvo. Hvert lið leikur því samtals 27 leiki í Bestu deildinni.

Ofsalegur október

Þessi lokahnykkur keppninnar hefur fengið gælunafnið ‘Ofsalegur október’ enda fyrsta umferðin leikin 2. október og sú síðasta 29. október.

Það er búið að raða því upp hvaða lið í hvaða sæti mætast og hvenær. Ef við tökum efri deildina sem dæmi þá yrði þetta lokaumferð efri deildar eins og staðan er í dag:

Breiðablik – KA á Kópavogsvelli
Víkingur – Valur í Fossvogi
Stjarnan – KR í Garðabæ

Svona gæti lokaumferðin litið út í neðri deildinni:

Fram – Keflavík – Úlfarsárdal
ÍBV – FH í Vestmannaeyjum
Leiknir – ÍA í Breiðholti

Tölfræði og innsýn er frá fótbolti.net.