Ísfélagið hf. og KFS hafa í gegnum tíðina átt gott samstarf. Í gær hittust Hjalti Kristjánsson framkvæmdastjóri KFS og Guðmundur Jóhann Árnason verkefnastjóri Ísfélagsins og var skrifað undir framlengingu á samningnum. Ísfélagði hefur reynst KFS afar mikilvægt í baráttu sinni í 3. deild og verið einn af aðal bakhjörlum félagsins undanfarin ár. Hér má sjá myndir frá undirskriftinni sem fór fram á skrifstofu Ísfélagsins í gær.

Myndin: Guðmundur og Hjalti Kristjánsson handsala styrktar- og auglýsingasamninginn milli KFS og Ísfélagsins hf.