Hand-, fót- og munnsjúkdómur virðist nú vera að dreifast í yngstu aldurshópunum í Vestmannaeyjum og þá sérstaklega á leikskólaaldrinum. Þetta kemur fram í ábendingu frá Heilsugæslu Vestmannaeyja.

Þetta er tiltölulega væg veirusýking sem oftast gengur yfir hjá börnum án nokkurra fylgikvilla.

Eftirfarandi upplýsingar eru fengnar af vef Heilsuveru:

Helstu einkenni

  • Hálssærindi.
  • Hiti.
  • Minnkuð matarlyst.
  • Sár í munni.
  • Húðútbrot með blöðrum á höndum og fótum og/eða koki.

Smitleiðir

  • Snertismit með beinni snertingu við vessa frá nefi, hálsi, blöðrum og með hægðum.
  • Veiran skilst út með hægðum í allt að 6 vikur eftir að einkenni eru horfin.
  • Smithætta er allt frá nokkrum dögum áður en einkenni koma fram, þangað til að útbrot eru horfin.

Meðferð

  • Engin sérstök meðferð er til gegn veirunni. Sjúkdómurinn er oftast mildur og í flestum tilfellum jafna einstaklingar sig á 7-10 dögum. 
  • Einkennameðferð felst í því að draga úr óþægindum sem geta fylgt sýkingunni. Það getur verið hjálplegt að nota verkjalyf eins og paracetamol og íbúprófen og gefa lyf sem minnka sársauka vegna sára í munni, t.d. deyfigel og sprey. 

Leita skal aðstoðar ef einkenni eru mikil og þú hefur áhyggjur.

Góðar forvarnir eru, eins og við aðrar sýkingar, handþvottur og hreinlæti. Gæta skal að vökvainntöku og hafa barn heima frá skóla/leikskóla á meðan hiti og útbrot ganga yfir.