Sjávarútvegssýningin  SJÁVARÚTVEGUR 2022/ ICELAND FISHING EXPO  2022 verður haldin   21. – 23. september í LAUGARDALSHÖLL.    Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar framkvæmdastjóra sýningarinnar er sýningin uppseld.

 „Sýningin er einstaklega fjölbreytt og margar nýjungar. Það eru allar tegundir af fyrirtækjum er þjóna íslenskum sjávarútvegi að með bása. Bæði stærstu fyrirtæki á þessu sviði og svo minni fyrirtæki. Þá er mikið af nýjum fyrirtækjum að koma inn  á sýninguna sem er vissulega ánægjulegt. Og þar ber sérstaklega að nefna fyrirtæki sem þjóna fiskeldinu bæði á sjó og landi.“

Hverju þakkar þú þennan mikla áhuga á sýningunni á næsta ári? „Það er ýmisslegt sem kemur til. Í fyrsta lagi er mikil eftirvænting hjá sýnendum að hitta viðskiptavini bæði nýja og svo gamla og gróna viðskiptavini. Þá er Laugardalshöllin eina sérhannaða sýningarhöllin á Íslandi og einstaklega vel staðsett til dæmis með stór  hótel í næsta nágrenni. Menn treysta því að þessar sýningar séu faglegar og forvitnilegar. Þá er áhuginn utan af landi áberandi og sýnir hversu miklu máli sjávarútvegurinn skiptir fyrir landsbyggðina,“segir Ólafur og bætir við.

„Síðast en ekki síst þá er sýningin á afar  góðum markaðstíma. Ég er búinn að halda sýningar stórar og smáar í 25 ár og reynslan kennir að það er vænlegast til árangurs að halda sýningar að hausti. Þegar menn eru komnir úr sumarfríum  og svo er að hefjast nýtt kvótaár. Slík skiptir afar miklu máli og líka að fyrirtækin hafi góðar tíma eftir sýninguna til að fylgja eftir samtölum við sýnendur og hugsanlega viðskiptavini. Þess vegna er seinnipartur september afar góður sýningartími,“ sagði Ólafur að lokum.

Myndir – Aðsendar

frá Sjávarútvegssýningunni 2019.