„Þetta er Evrópuverkefni sem Rannís skipuleggur hér á landi og við köllum Vísindakaffi. Það byrjar í Reykjavík á laugardaginn en við ásamt fimm öðrum stöðum úti á landi verðum með okkar vísindakaffi á mánudaginn. Hjá okkur er það frá klukkan 16.30 til 19.00. Eru allir velkomnir að kíkja við í Þekkingarsetrinu,“ sagði dr. Filipa Samarra sem ásamt  dr. Paul Wensveen ætlar kynna rannsóknir á hvölum sem útibú Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum annast.

Mjög fjölbreytt starfsemi er í Þekkingarsetrinu og gefst fólki tækifæri á að kynna sér hana. „Það verður opið hús. Allir velkomnir og margt að skoða. Meðal annars Fablabið hjá Frosta á þriðju hæðinni sem er mikill ævintýraheimur.

Fyrirtækin á annarri hæðinni verða opin gestum og gangandi. Sjálfur kynni ég Uppbyggingarsjóð Suðurlands, SASS en stutt er í að umsóknarfrestur þetta árið renni út. Filipa býður upp á kaffi og kleinur og fólk getur fengið leiðsögn um húsið. Þetta á að vera skemmtilegur dagur,“ sagði Hörður Baldvinsson, framkvæmdastjóri Þekkingarsetursins.

Mikið er til af gögnum um hvalarannsóknirnar sem stýrt er frá Vestmannaeyjum. Ætla Filipa og Paul að sýna myndbönd af hvölum á skjá í fyrirlestarsalnum . „Það er gaman að sjá hvernig hvalir haga sér í sjónum. Marga þekkjum við og hvalir eiga sitt tungumál og erum við með hljóðupptökur sem segja sögu sem við skiljum ekki, því miður.“

 

Filipa segir öllum í sjáfsvald sett hvernig Vísindakaffinu er háttað en þau leggja áherslu á rannsóknir á hvölum sem þau stundað frá árinu 2007. „Hingað getur fólk komið og við munum sýna gestum það sem við erum að gera og vonumst til að sjá sem flesta.“