Olís deild karla heldur áfram í dag þegar ÍBV strákarnir taka á móti liði Harðar frá Ísafirði en um er að ræða frestaðan leik úr fyrstu umferð. Gestirnir sitja stigalausir á botni deildarinnar en ÍBV er með 4 stig eftir 3 leiki í 5. sæti deildarinnar fyrir leikinn.

Flautað verður til leiks í Íþróttamiðstöðinni klukkan 16:00 í dag.