Framkvæmdarstjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs kynnti drög að teikningum að nýbyggingu við Hamarsskóla á fundi fræðsluráðs sem fór fram í gær. Í niðurstöðu ráðsins þakkar ráðið kynninguna einnig voru lagðar fram tvær bókanir.

Utanaðkomandi aðstæður hafa tafið verkið
Fulltrúar E- og H-lista lögðu fram eftirfarandi bókun. “Meirihluti E- og H-lista lýsir yfir ánægju með að drög að teikninum liggi fyrir, þó það hefði auðvitað verið óskastaða að ferlið við nýbygginguna væri komið lengra á veg en utanaðkomandi aðstæður í þjóðfélaginu hafa tafið verkið. Fulltrúar E- og H-lista hlakka til að fylgjast áfram með vinnunni við þetta spennandi verkefni.”

Rúm fjögur ár liðin
“Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna drögunum og leggja jafnframt þunga áherslu á að viðbygging Hamarsskóla verði forgangsverkefni í framkvæmdaráætlun sveitarfélagsins og það endurspeglist við fjárhagsáætlunargerð næsta árs. Rúm fjögur ár eru síðan fyrsta tillaga um viðbygginguna var flutt og þrjú ár síðan bæjarstjórn samþykkti að hefja vinnu við stækkunina
Aðkallandi er að bæta sem fyrst aðstöðu tónlistarskóla, frístundavers og aðra aðstöðu grunnskólans á borð við samkomu- og matsal.”