Ófært er til bæði Landeyjahafnar og Þorlákshafnar vegna veðurs þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi en vindur er sem stendur allt að 30 m/s. Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að fella niður ferðir seinni part dagsins.
Einnig kemur fram að Herjólfur III hefur siglingar milli lands og Eyja í fyrramálið skv. eftirfarandi áætlun.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 11:00, 14:00, 17:00, 21:00
Brottför frá Landeyjahöfn kl. 09:00, 12:30, 15:30, 19:00, 22:30