Ófært er til Landeyjahafnar vegna ölduhæðar þetta kom fram í tilkynningu frá Herjólfi í morgunn, að því sögðu siglir Herjólfur til Þorlákshafnar núna fyrri hluta dags.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45.
Þeir farþegar sem áttu bókað kl. 07:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 09:00 frá Landeyjahöfn hafa verið færðir sjálfkrafa milli hafna.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.
Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir faratæki í annarri hvorri höfninni.
Hvað varðar siglingar seinnipartinn í dag, þá verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00