Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. og hluthafar í Ós ehf. og Leo Seafood ehf. í hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup Vinnslustöðvarinnar á öllu hlutafé í félögunum tveimur. Viljayfirlýsingin er með fyrirvörum um tiltekin atriði en gangi kaupin eftir er gert ráð fyrir að samningar þar að lútandi verði undirritaðir á næsta ári.

Ós ehf. á og gerir út Þórunni Sveinsdóttur VE-401 og Leo Seafood ehf. starfrækir fiskvinnslu í Eyjum. Eigendur félaganna eru Sigurjón Óskarsson útgerðarmaður og fjölskylda hans.

Tíðindin voru kynnt í morgun á starfsmannafundum félaganna sem koma við sögu.