ÍBV mætir tékknesku meisturunum Dukla frá Prag í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik en dregið var í keppninni í morgunn. Leikirnir eiga að fara fram fyrstu og aðra helgina í desember ef leikið verður heima og að heiman. Fyrri viðureignin verður í Vestmannaeyjum.

ÍBV vann Donbas með miklum mun í annarri umferð um síðustu helgi. Dukla Prag vann Handball Esch frá Luxemborg í annarri umferð samanlagt með þriggja marka mun, 66:63.