Herjólfur siglir til Þorlákshafnar amk fyrri ferð mánudagsins 14.nóvember. Samkvæmt tilkynningu frá félaginu.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 10:45.
Þeir farþegar sem áttu bókað á þessum tímasetningum í Landeyjahöfn hafa verið færðir sjálfkrafa á milli hafna, aðrir þurfa að hafa samband við afgreiðslu okkar til þess að færa bókun sína.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.
Hvað varðar siglingar fyrir seinnipart mánudags, þá gefum við út tilkynningu kl. 15:00.