Bæði karla og kvenna lið ÍBV eiga útileiki í Olísdeildinni í dag. Klukkan 14:00 mætast í Úlfarsárdal kvennalið Fram og ÍBV liðin eru sem stendur jöfn að stigum í 3.-4. sæti deildarinnar með 8 stig eftir 6 leiki. Klukkan 17:30 mæta svo strákarnir Haukum á Ásvöllum. Haukar sitja sem stendur á framandi slóðum í fallsæti í deildinni og staðráðnir í að gera betur. ÍBV er í 6. sæti deildarinnar og þarf á báðum stigunum að halda til að blanda sér í topp baráttuna.

Báðir leikirnir eru í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.