Áfram verður haldið að leika í 13. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í dag en fyrsti leikur dagsins fer fram í Vestmannaeyjum þegar leikmenn KA sækja Eyjamenn heim. KA menn komu til Vestmanneyja í gær og því ekkert því til fyrirstöðu að hefja leik klukkan 14:00. Liðin skildu jöfn þegar þau mættust fyrr í vetur en bæði eiga það sameiginlegt að hafa lagt Fram á útivelli síðustu leikjum sínum.