Eyjamenn fá topp lið Vals í heimsókn í dag en um er að ræða aðra af tveimur heimsóknum Vals til Vestmannaeyja í desember. Liðin mætast aftur í bikarkeppni HSÍ þann 15. desember. ÍBV situr í fjórða sæti deildarinnar með 14 stig eins og Afturelding sem er sæti ofar. Flautað verður til leiks klukkan 14:00 í dag.